Thursday, January 12, 2012

12. janúar 2012

Jæja, þá ætla ég að demba mér í bloggerí, komin með síðu og ásetning um að reyna að blogga nokkuð reglulega um það sem helst er að frétta af vettvangi menningarmála hér í Ölfusinu og auðvitað af ýmsu öðru sem ég tel gaman að tilgreina og kannski til einhvers gagns.
Það er ýmislegt á döfinni á þessu nýja ári, skemmtileg og vonandi mörg krefjandi verkefni framundan. Nú þegar ég skrifa þetta, stendur yfir fundur bæjarráðs og ég er spennt að vita hvort ákvarðanir verða teknar um framtíðar geymslu fyrir muni byggðasafnsins. Byggðasafn Ölfuss á marga merka gripi sem tengjast sögu byggðar hér og þarf að koma gripunum í góða geymslu þar sem aðgengi er þægilegt og hiti ekki of mikill og helst stabíll (svo maður tali ekki um rakastigið). Ætli þetta verði ekki meginverkefni ársins, þ.e. að koma byggðasafninu í góða geymslu og síðan er hægt að móta sýningaráætlun.
Annað spennandi verkefni sem byrja þarf að huga að er kynning, markaðssetning og glæsileg opnun Suðurstrandarvegar. En það er aldrei að vita nema ferðamálin fái aukið vægi á árinu, enda er þetta grein sem er algerlega ný hér í Þorlákshöfn. Vonandi náum við að kynna nýja heimagistingu í Þorlákshöfn með vorinu, eitthvað sem hefur sárlega vantað. Og fleiri verkefni á sviði ferðamála eru í umræðunni - mjög spennandi!
Já, ég er þess fullviss að árið 2012 verði gott ár hér í Ölfusinu og þrátt fyrir hrakspár völva í upphafi árs, er ég full bjartsýni fyrir okkar allra hönd.
Lesandi góður, þakka þér fyrir innlitið, kíktu aftur við á morgun, þá mun ég setja inn nýjan texta (ég lofa ;)