Þá er aftur kominn föstudagur, mikið svakalega líður vikan hratt. Þetta er búinn að vera mjög góður dagar og mig langar ril að nota tækifærið og þakka henni Sóleyju Einarsdóttur kærlega fyrir að nenna að mæta þrjá morgna í viku vel fyrir klukkan sex í íþróttahúsið. Þar lætur hún stóran hóp fólks svitna sem mest þeir mega á hjólunum undir hressandi tónlist. Ég hef reyndar ekki þorað að skrá mig á fullt námskeið hjá Sóleyju, veit ekki hvort vonda hnéð þyldi það, en fyrir vikið getum við nokkur mætt og æft í tækjunum á þessum tíma. Fyrir marga er þetta eini tíminn sem virkar - maður rýkur út fyrir allar aldir, löngu áður en maður hefur rænu á að ákveða að vera latur eða þreyttur eða finnur þúsund afsakanir fyrir að fara ekki. En það var ekki hlaupið að því að komast í ræktina í morgun. Asahláka og hvassviðri. Ég neyddist til að fara á bíl og átti samt erfitt með að komast hina stuttu leið að dyrum hússins. Þar tók við ketilbjöllutími hjá Sibbu, en hún er súper einkaþjálfari og var það mikill fengur fyrir Þorlákshöfn að þau hjónin ákváðu að flytja hingað. Nú eru þau að skipuleggja heilmikla söngvarakeppni til að safna pening fyrir þrekbraut eða skólahreystibraut. Hún bað mig á fésinu að auglýsa eftir keppendum og er það hér með gert, öll fyrirtæki og stofnanir í Ölfusi eru hvött til að taka þátt. Bókasafnið er að sjálfsögðu búið að skrá sig og verður með svakalega flott atriði (mér skilst að umgjörð og búningar skipti verulegu máli og aðalatriðið sé að hafa gaman af). Já, það er eins gott að gera eins og Sibba biður því hún er í sérlega góðri aðstöðu til að pína mig.
En nú er milt veður úti og hægt að lækka aftur í ofnunum. Myndum í gluggum bókasafnsins hefur fjölgað, fleiri myndir eftir Davíð hafa verið prentaðar (endilega hnippið í Róbert Ingimundarson og minnið hann á að senda mér myndir þegar þið sjáið hann :) og hér fyrir utan hafa margir krakkar skemmt sér við að skoða myndirnar. Það virðist reyndar vera alveg krökkt af börnum á flandri í Þorlákshöfn í dag. Mig grunar að það tengist undankeppni söngkeppni Samfés sem fram fer í félagsmiðstöðinni á eftir. Ég óska öllum þátttakendum góðs gengis í keppninni.
Áður en ég læt þessu bloggi lokið langar mig til að minnast nýárstónleika sem voru hér í ráðhúsinu í Þorlákshöfn um síðustu helgi. Það er Lúðrasveit Þorlákshafnar sem stendur fyrir tónleikunum, en lúðrasveitin er orðin sérlega góð og virðist bara ætla að verða betri. Auðvitað skiptir öllu máli að stjórnandinn, Róbert Darling, hefur mikinn metnað fyrir hönd sveitarinnar og brennandi áhuga á því sem hann er að gera, en það skemmir örugglega ekki fyrir að lúðrasveitin hefur unnið að mörgum spennandi verkefnum og þar ríkir mjög góður andi - allavega hefur maður það á tilfinningunni þegar leikgleðin skín af prúðbúnum andlitunum. Þetta er í annað skipti sem lúðrasveitin efnir til nýárstónleika og fengum við að heyra vínartónlist og ýmis þekkt hljómsveitarverk auk skemmtilegrar útsetningar þar sem mörgum lögum var blandað saman. Margrét Stefánsdóttir, söngkona kom fram með lúðrasveitinni og Leikfélag Ölfuss sá um leikræna útfærslu nokkurra laga. Þetta voru sérlega glæsilegir tónleikar og er ég ekki ein um að vonast til að áframhald verði á þessu.
Kæru lesendur, eigið góða helgi, farið vel með ykkur og varlega í umferðinni.