Tuesday, January 17, 2012

17. janúar 2012

Góður dagur er að baki. Hann byrjaði hjá mér á fundi og endaði á fundi sem báðir voru mjög góðir þó ólíkir væru. Ég fór á Selfoss í morgun að hitta sérlega duglegt og kraftmikið fólk sem á það sameiginlegt að vera til í að vinna að sameiginlegu verkefni sem kemur stóru svæði til góða. Ég ætla að segja betur frá þessu verkefni þegar það er komið aðeins meira á skrið og það verður örugglega fljótlega.
Af seinni fundinum kom ég áðan og náði að undirbúa hann í dag með því að taka saman tölur og upplýsingar. Samantektina er hægt að skoða með því að smella á slóðina:
http://www.olfus.is/media/menning/Arsskyrsla-menningarmala-Olfuss-2011.pdf
Það sem er kannski helst spennandi og gaman að skoða í þessari samantekt er hversu mikil aukning er á gestakomum á bókasafnið. Ef meðaltalið er tekið erum við að fá um 116 gesti á safnið á dag og er það mikið á ekki stærri stað. Þetta segir okkur að við séum að gera eitthvað rétt, enda reynum við að leggja okkur fram um að veita góða þjónustu og taka vel á móti öllum gestum safnsins. Hinsvegar fækkar útlánum. Fólk virðist alltaf vera að taka færri safngögn að láni hjá okkur. Þetta er eitthvað sem ég ætla að skoða nánar og bera saman við önnur söfn. Ég gæti best trúað að þetta væri bara nokkuð misjafnt. Það eina sem ég náði ekki að skoða fyrir kvöldið voru millisafnalánin, en við höfum held ég alltaf lánað fleiri gögn til annarra safna en við höfum fengið lánuð, enda er safnið mjög vel búið safnkosti - kannski óþarflega vel búið, enda höfum við verið að draga úr innkaupum og reynt að meta hvað kaupa þurfi frekar en að kaupa flest útgefið efni á landinu.
Á þessum íbúafundi um málefni Sveitarfélagsins Ölfuss var sérlega góð mæting, langt umfram það sem við gerðum okkur vonir um. Bæjarstjóri og bæjarfulltrúar kynntu fjármálin, skipulagsmál og atvinnumál og formenn nefnda og forstöðumenn kynntu stöðu mála í einstökum málaflokkum. Þetta var mjög góð yfirferð og sérlega upplýsandi. Svolitlar umræðar sköpuðust og gestum gafst kostur á að tjá sig í pontu. Það var vel staðið að fundinum, fínar veitingar í hléi og í alla staði gott framtak sem vonandi á eftir að endurtaka.