Wednesday, January 18, 2012

Ferðamenn og herramenn

Í burðarliðunum er sérlega spennandi verkefni þar sem Herjólfsafgreiðslan í Þorlákshöfn fær nýtt hlutverk yfir sumartímann, kannski ekki gerólíkt fyrra hlutverki en þó annað. Hugmyndin er að vera þarna með upplýsingaþjónustu fyrir ferðamenn, kaffihús, handverksmarkað, viðburði í sjó og á landi, fiskmarkað og bókanir í allavega ferðir og afþreyingu. Ég held að þetta geti orðið mjög spennandi en mikilvægt er að ná góðu starti, gera þetta af krafti (sem ég veit að þeir sem að þessu koma eiga nóg af) og helst að geta sett af stað góða kynningu og markaðssetningu. Vinnuhópur er að leiða þetta áfram og síðan verður þetta kynnt þegar búið er að móta rekstrarfyrirkomulag og fleira.  Mín tilfinning er að við eigum eftir að sjá Þorlákshöfn og Ölfusið vinna meira á á sviði ferðaþjónustu og það kemur svo sannarlega öllum til góða því með ferðaþjónustu verður til fjölbreyttari þjónusta og atvinnutækifærum fjölgar.  Nú er lag að draga fram ferðamálastefnuna og reyna að hamra á einhverjum þeirra hugmynda sem þar eru viðraðar.
Bókasafninu barst í dag í pósti lítil, blá bók sem heitir Litla herramennskukverið. Þetta er bók sem þið strákarnir ættuð ekki að láta framhjá ykkur fara. Í bókinni er greint frá "grunnstoðum" herramennskunnar auk þess hvernig á að haga sér á veitingastað, hverskonar föt er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum, kennt er að binda hnút á slaufu og bindi og að blanda "réttu" drykkina.  Í kafla sem nefnist "dægurhjal" kemur fram að "Það er ekki nóg að vera skemmtilegur, beinn í baki og líta vel út. Augnsambandið er það sem gerir gæfumuninn. Þér er sýnt meira traust og áhugi haldirðu góðu, stöðugu augnsambandi. Flóttalegt augnaráð gefur til kynna að þú hafir eitthvað að fela. Fyrst um sinn kann þér að þykja mikið augnsamband óþægilegt en sú tilfinning hverfur með æfingu og auknu sjálfstrausti" (bls 23 í fyrrnefndri bók eftir Kristinn Árna L. Hróbjartsson). Nú bíðum við bara eftir því að bókin verði skráð í Landskerfi bókasafna svo við getum farið að lána hana.