Ég var ansi ósátt við þennan bloggstað fyrir löng síðan þegar eini möguleikinn til að skrifa var í gegnum Chrome vafra. Mér leiðist svona einokunarstefna og þráaðist því lengi vel við. Nú hef ég alls ekki neitt á móti króminu, hef haft hann lengi uppsettan í tölvunni minni, en vildi ekki láta beygja mig.
En nú geri ég það samt, beygi mig og bugta, eða þannig. Leiðinlegt að skilja við bloggsíðu án þess að kveðja.
En ég er ekkert að kveðja, allavega ekki í bili.
Mætt aftur á árinu 2014, sem ég held að verði sérlega gott ár. Hlýtur að vera, ártalið er fallegt og ég hef miklar væntingar.
Ég fékk skemmtilega heimsókn á safnið í dag. það lítur út fyrir að Byggðasafninu verði færð dýrmæt gjöf á árinu. Það er reyndar vitað mál að þetta verður ár byggðasafnsins. Segi ykkur betur frá því síðar.
Læt þessu lokið í bili.
Aldrei að vita nema ég skrifi aftur eitthvað á morgun.
Eigið góðan dag í rokinu.