Friday, June 3, 2016

Í vikulokin

Það er búið að vera gaman hjá okkur á menningarsviði Ölfuss síðustu daga. Reyndar mikið að gera, svolítið stress og hasar en einnig mikil uppskera og ánægja.  Árný Leifsdóttir er klárlega hetja vikunnar. Hún á langstærstan heiður af sumarsýningu Byggðasafns Ölfuss sem nú hefur verið opnuð í Gallerí undir stiganum. Sýningin ber yfirskriftina "Þorp verður til" og er leitast við að miðla þeirri tilfinningu sem hefur ríkt í Þorlákshöfn á fyrstu árum þorpsmyndunar.  Þorlákshafnarbúar taka þorpsstemningunni kannski sem sjálfsögðum hlut en við sem erum aðflutt, vitum að samfélagið er einstakt. Þegar maður mætir nýr í þorpið við ströndina, er ótrúlega mikil velvild sem mætir manni. Allir eru reiðubúnir að aðstoða, leiðbeina og bjóða nýja íbúa velkomna í hin og þessi félög. Það er einstakt - ekki sjálfsagt.
Við vorum líka að opna aðra sýningu, útiljósmyndasýningu sem staðsett er við Selvogsbrautina í Þorlákshöfn. Ég mæli eindregið með því að fólk taki sunnudagsbíltúrinn í Þorlákshöfn í sumar og skoði frábærar ljósmyndir Bryndísar Víglundsdóttur. Myndir teknar í Ölfusi og Þorlákshöfn af fallegu umhverfi og allskonar andrúmslofti. Þið verðið ekki svikin af því.
Annar hápunktur vikunnar voru tónleikar Tóna og Trix, en það er tónlistarhópur eldri borgara í Þorlákshöfn. Sungin voru öll vinsælustu dægurlögin - þau sem við þekkjum öll og elskum. Það er magnað að þessir tónleikar elsta hópsins eru jafnframt framúrstefnulegustu tónleikarnir að því leiti, að tónleikagestir voru hvattir til að opna símana, kíkja inn á fésbókarsíðu Trixara og syngja með, enda var alla texta þar að finna. Íbúar voru hvattir til að koma í tónlistarhópinn en heyra mátti vonbrigðaandvörp þegar Ása Berglind - stjónandinn - nefndi að aldurstakmarkið væri 60 ár.
Vikulokin eru ekki amaleg. Dásamlegt veður, allir að grilla, krían gargandi og svo læðist þokan hægt og hljótt inn yfir landið.