Wednesday, June 1, 2016

Góður dagur við ströndina

Þrátt fyrir að Hafnardagar, bæjarhátíðin okkar hér í Þorlákshöfn sé ekki um Sjómanndagshelgina - semsagt næstu helgi, þá er nóg að gera og um að vera hér í þorpinu okkar góða. Við, starfsmenn á bókasafninu erum á fullu að vinna sýningu sem opnar á morgun - önnur sýning opnar á föstudag (ljósmyndasýning við Selvogsbrautina) og síðan er björgunarsveitin búin að skipuleggja bryggjuhátíð á laugardaginn.  Ég dáist að þessum ungu félögum í björgunarsveitinni sem eru ekki bara að skipuleggja viðburði á bryggjunni heldur líka að sinna gæslu og undirbúa Sjómannadagskaffihlaðborð fyrir sunnudaginn. Ójá, þarna er mikill kraftur og hægt að láta sig hlakka til (bæði skemmtunar og tertuhlaðborðs).

Það má með sanni segja að þessi vika sé fundarvikan ógurlega hjá mér. Á þremur dögum er ég búin að sitja sex fundi, þar af síðasta menningarnefndarfundinn minn sem var í kvöld. Við ákváðum að bregða útaf venju og fara í menningarferð, heimsóttum Stokkseyri þar sem við fórum í kajakferð með Gunnari Valberg og síðan kíktum við á orgelsmiðjuna hans Björvins.  Það er óhætt að mæla með báðum stöðum og ekki var heldur ónýtt að ljúka deginum á Hafinu Bláa þar sem við héldum fundinn okkar.  Fundurinn var góður eins og alltaf, enda skeleggt og skemmtilegt fólk sem ætíð velst í menningarnefndina. Þúsund þakkir fyrir samstarfið í gegnum árin!

Ég náði síðan í lok dags að horfa á síðasta þáttinn af "House of cards" (þ.e. í þessari þáttaröð). Þetta hafa verið einu sjónvarpsþættirnir í vetur sem ég hef bara alls ekki mátt missa af og nú er þetta búið í bili - þvílíkur endir. Hjónin sýna sitt rétta andlit - úff - Guð blessi Ameríku og allt það...