Thursday, January 12, 2012

12. janúar 2012

Það var heilmikið um að vera fyrir framan bakaríið í Þorlákshöfn í morgun; kastarar, lítil rúta og fullt af fólki, vel klæddu, að hrópa og kalla og munda allavega græjum. Þarna var verið að taka upp stuttmyndina Harður Heimur eftir þá Þórð Pálsson og Egil Antonsson. Myndin er lokaverkefni þeirra félaga úr Kvikmyndaskóla Íslands, hádramatísk saga úr samtímanum. Ég reyndi að ná mynd af þessu, en það kom nú ekkert gott úr því, of mikið myrkur og svona.
Annars var þetta bara frekar rólegur dagur. Margir hafa legið á gluggunum hjá okkur, enda skemmtilegar myndir sem hægt er að skoða. Við ákváðum að fara með gardínurnar í þvott og vorum svo agalega berskjaldaðar í kjölfarið. Þessvegna ákvað ég að prenta út nokkrar af þeim flottu myndum sem Davíð Þór Guðlaugsson tók á afmælishátíð Þorlákshafnar í sumar og setja þær í gluggana. Þetta kemur mjög vel út. Ég held ég prenti bara nokkrar myndir í viðbót. Þegar Róbert Karl Ingimundarson kom með Bæjarlíf til mín í morgun sagðist hann eiga margar góðar myndir sem hann tók á hátíðinni og ég bað hann um að senda mér nokkrar. Ég vona svo sannarlega að hann geri það, þannig að alltaf verði fleiri og fleiri myndir sem hægt verður að skoða í gluggunum.
Það er nú samt ekki leiðinlegt að geta horft út núna, fuglarnir halda sig mikið hér í fatlaða stæðinu sem er beint fyrir framan gluggann minn og drekka vatnið sem safnast hefur í polli. Það er gaman að fylgjast með þeim flögra um, hrista fiðrið og klappa með stélinu í vatnið.
Jæja, fyrsti dagur í bloggi og ég er búin að blogga tvisvar (dugleg - nú er ég að klappa mér á bakið :). Ég lofa nú ekki að þetta verði svona alltaf en stefni að því að halda áfram, þannig að það er óhætt að hvetja þig lesandi til að kíkja aftur við á morgun :)